Allir velkomnir!
Spjallhornið opnar kl. 16:45
Fundur settur kl. 17
Kl. 17:15 hefst erindi fundar.
Anil Srivatsa, rótarýfélagi segir okkur frá starfi sínu og draum um að sameina Rotary á alþjóðavísu um líffæragjafir. Athuga, erindið er á ensku.
Anil er einn af stofnendum, og fyrsti forseti, Rotary Club of Organ Donation í Bangalore, fyrsta verkefnamiðaðað rótarýklúbbs í heimi. Klúbburinn var stofnaður árið 2022.
Draumur Anil er að sameina Rotary, Lions og Indverskt samfélag um Líffæragjafir, svo saman verði hægt að byggja heim þar sem enginn láti lífið á meðan beðið er eftir líffæri.
Anil Srivatsa hefur, síðustu 10 ár, heimsótt 79 lönd á jeppanum sínum, sem prýddur er slagorðinu “Nýrnagjafar eru sexý” ásamt fleyri slagorðum sem vekja okkur til vitundar um nauðsyn líffæragjafar. Ferðalagið nær yfir 1000 daga, 1500 kynningar á verkefninu
og hann hefur náð til 350 þúsund manns. Stóra verkefnið er vitundarvakning um mikilvægi blóð- og líffæragjafar.
Nú er komið að Íslandi. Anil og kona hans verða á ferðinni í nokkrar vikur
Anil ferðast gjarnan með eiginkonu sinni, Deepali Srivatsa, og jeppinn er ekki bara auglýsingaskilti um líffæragjafir, hann er líka heimili þeirra á ferðalögunum.
Fundi slitið kl. 18 en spjallið opið aðeins lengur.
Microsoft Teams-fundur
Tengjast:
https://teams.microsoft.com/meet/33856149548310?p=fitABl7zdrPSzQScRJ
Auðkenni fundar:
338 561 495 483 10
Lykilorð:
SV7W2Mx9
Hlökkum til að sjá ykkur,
Stjórnin