Áramótakveðja 2025/2026

miðvikudagur, 31. desember 2025

Kæru vinir.

Þegar árið er að líða undir lok er gott að staldra við, líta yfir farinn veg og þakka fyrir samfylgdina á liðnu ári. Það hefur verið mér mikill heiður að fá að vera með ykkur öllum og finna þann samhug, þá hlýju og vináttu sem einkenna fundina okkar – í anda einkunnarorða Rótarý, Saman til góðs.

Á árinu höfum við notið fjölbreyttra og fróðlegra heimsókna og fyrirlestra sem hafa auðgað okkur bæði sem einstaklinga og félaga.

Þar má nefna Guðmund Ásgeirsson lögreglumann sem sagði okkur frá störfum sínum innan lögreglunnar, Sigríði Björk umdæmisstjóra sem fræddi okkur um Rótarý og það sem efst er á dagskrá, Ásgeir Jónsson hæstaréttarlögmann sem fjallaði um erfðamál, og Ottó Elíasson forstjóra Eims sem kynnti fyrirtækið.

Þá nutum við einnig fallegrar jólahugvekju frá Sigríði Kristínu Helgadóttur presti og fróðlegrar frásagnar Elínar Björnsdóttur félagskonu okkar um Rótarýþing sem hún sótti í Singapore og Calgary.

Ég vil einnig nefna sameiginlegan fund okkar með Rótarýklúbbi Húsavíkur sem var afar skemmtilegur og gefandi – vonandi eigum við eftir að endurtaka slíkt samstarf.Mig langar að minna á nokkra viðburði sem eru framundan :

• Hátíðartónleikar fara fram í Salnum í Kópavogi þann 4. janúar.

• Fræðslumót fyrir þá embættismenn sem taka við  á næsta embættisári verður haldið 7. mars 2026 kl. 9–16.

• Næsta Umdæmisþing verður 9.–10. október 2026 í Mosfellsbæ og hvet ég félagsmenn eindregið til að taka þátt – það er alltaf gaman að vera saman, efla tengslin og njóta félagsskaparins.

Að lokum vil ég þakka ykkur öllum fyrir eljuna, þátttökuna og góða samveru á árinu. Við hlökkum til að taka á móti bæði gömlum og nýjum félögum á komandi ári og halda áfram að rækta þá hlýju og vináttu sem eru einkennandi fyrir klúbbinn okkar.

Ég óska ykkur og ykkar nánustu Gleðilegra Jóla og farsæls nýs árs og takk fyrir liðin ár.

Hlakka til að hitta ykkur öll á fyrsta fundi ársins, þann 14. janúar kl. 17.

Með áramótakveðju,

Soffía Heiða Hafsteinsdóttir

Forseti Rotary eClub Iceland 2025 til 2026